Hringekja í Stærðfræði

Ég og árgangurinn minn erum buin að vera í hringekju í stærðfræði í allann vetur og ég hef lært mikið af þeim tímum. Minn bekkur byrjaði hjá Auði kennara, síðan fórum við til Önnu og síðan til Helgu. Við gerðum mismunandi hverjum tíma. Við gerum frekar mismunandi í hverjum hópi, t.d. við gerðum munsturblað og ljóð hjá Önnu, við gerum oftast þrautir hjá Auði og Helgu og spiluðum stundum hjá Helgu.

Hallgrímur Pétursson

Ég var að læra um Hallgrím Pétursson og gerði Power Point úr upplýsingunum um hann. Við bekkurinn fengum upplýsingar inna rúv.is og inna Wikipedia. Ég lærði margt af þessu verkefni, bæði um hann sjálfann og aðra sem hann þekkti. Ég lærði t.d. hvaða skóla hann fór í, hvert hann flutti og hvað hann lærði, síðan lærði ég um börn hans og fleiri.

Ég gerði 12 glærur í Power Point og reyndi að hafa þær eins fræðandi og hægt er, bæði með myndum og texta. Mér fannst þetta vera mjög fræðandi og skemmtilegt.


Rúmenía

Ég var með Rúmeníu og ég átti að fjalla um það með power point og átti að kynna það land fyrir kennaranum og öllum bekknum. Mér fannst það bara mjög gaman en ég var reyndar að drífa mig svoldið mikið með þetta verkefni því ég vildi ekki eyða miklum tíma í þetta verkefni svo að ég lærði ekkert mikið af því eða allavega ekki í byrjun en síðan fór ég að lesa yfir og læra aðeins af verkefninu. En mér fannst líka alveg gaman að kynna þetta fyrir bekknum en það var svoldið stressandi en samt gaman:) en mér fannst lang lang skemmtilegast að sjá kynninguna hjá hinum.  


Verk og list

Ég var í  hreyfimyndum og það var frekar bara gaman en við áttum að gera fullt af myndum sem var reyndar dálítið erfitt. Við þurftum að tala inná og síðan ætluðum við að sýna myndbandið á uppskeruhátíðinni en við gátum það ekki því að það var ekki hægt að tengja tölvuna sem myndbandið var í við myndvarpann. Ég, Arna, Svava, Embla og Birta vorum saman í hóp. Við gerðum myndband um eiginlega blönduð ævintýri um Stigvélaða köttinn, Mjallhvít, Bangsímon, tvo Ólaprik- kalla og Kalla kanínu. Ég teiknaði og talaði inná Stígvélaða köttinn, Embla teiknaði og talaði inná Kallakanínu og hún teiknaði líka einn Ólaprik kallinn en ég talaði inná, Arna teiknaði og talaði inná Bangsímon og hinn Ólaprik kallinn og Svava teiknaði og talaði inná Mjallhvít. Við vorum líka í tónment og í fyrsta tímanum áttum við að teikna frægar stjörnur eftir tímaásnum sem er á veggnum og ég teiknaði John Lennon en ég gleimdi að láta hengja myndina á vegginn. Við gerðum líka ritgerð um frægar stjörnur og við áttum að finna myndir af þeim í tölvuni og heingja þær uppá vegg á réttan tímaás. Núna er ég nýbyrjuð í saumum og við eigum að gera náttbuxur og fengum að velja efni en við erum ekki alveg byrjaðar á þeim en við erum búin að velja efni. Það var hægt að velja blátt með blómum,bleikar með hjörtum, röndótt, og síðan nokkur köflótt. Ég valdi mér bláar og grænar köflóttar náttbuxur og ég fékk þær. Það voru líka nokkrir sem keyptu sér efni. Það er búið að vera gaman í þessu öllu.


Norðurlönd

 Ég var að læra um Norðurlönd og við byrjuðum að gera hópverkefni. Ég, Gísli, Janus og Sif vorum saman í hóp og við fjölluðum um Danmörk. Við áttum að skrifa svona helstu aðalatriði  um Danmörku og við skrifuðum t.d. um H.C Anderson og margt fleira. Við fengum bók um Norðurlöndin  við vorum að fara í próf og við höfðum mánuð til að lesa og gera okkur tilbúin. Mér gekk svona sæmilega í því en ég er ekki viss af því að ég týndi bókinni eftir svona viku eftir að ég fékk hana, en svo lánaði Alexsandra  frænka mín mér Norðurlandabók sem hún átti í raun og veru að vera löngu búin að skila en lánaði mér hana á sunnudaginn með einu skilyrði að ég mundi skila henni aftur.  En ég gleymdi henni á Þriðjudaginn í skólanum og hún var svo horfin. En ég fékk hjálp frá vini mínum degi fyrir prófið.Smile

Ritgerð um hvali

Ég var að læra margt um hvali, helst um stökkul. Það var lærdómsrík og áhugavert og mjög fræðandi. Við gerðum heimildarritgerð um hvali. Við byrjuðum á uppköstum en svo fórum við að skrifa í tölvur og gera allt fínt. Ég ætla að sýna ykkur ritgerðina mína en hún kemur seinna inná. Við fórum svo í smá hvalveiðaferð með árgangnum. Það var mjög gaman og sáum hnísur og margt fleira þarna út á sjó.

Snorri Sturluson

Við vorum að læra um mikla manninn Snorra Sturluson. Við lásum bókina eftir Þórarin Eldjárn. Við lærðum heilmikið úr henni og heftinu sem við gerðum. Við árgangurinn fórum í ferð í Reykholt og við sáum staðinn sem Snorri Sturluson bjó og dó svo og líka heitan pottinn sem hann átti. Það var prestur sem hét Geir Waage sem sagði okkur ýmilegt t.d. að stúlkan sem Snorri giftist var eitthvað um 15 ára og hún lék sér með dúkkur í brúðkaupinu og margt margt fleira. Mér fannst Snorra saga áhugaverð, skemmtileg og vel skrifuð bók.

Hópverkefni í Eglu

Ég var í hóp með Antoni og Rebekku. Við vorum að gera hópverkefni sem tengdust Eglu. Við byrjuðum á því að ákveða hver gæti gert hvað og þegar því var lokið byrjuðum við að vinna. Við unnum af öllum krafti og náðum að gera dúkkulísur, leikrit og svo skrifuðum við um Egil. Þetta var mjög skemmtileg vinna og áhugaverð. Egill Skalla-Grímsson var skemmtilegur karl greinilega og sýndi mikla dirfsku og kjark. Það var mjög spennandi að læra um hann, það var tilbreyting.

Hér er myndband

Ég hef verið að læra um Egil Skalla-Grímsson í vetur. Ég hef gert mörg verkefni, gert vinnubók og próf en svo gerði ég myndband. Ég náði í myndir af netinu og setti í movie-maker myndband. Svo talaði ég inná það með hjálp audacity. Hér er myndbandið sem ég er búin að vera að vinna í um Egil og myndbandið er ljóð sem hann bjó til og það heitir Það mælti mín móðir.


« Fyrri síða

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband