15.12.2009 | 14:02
Verk og list
Ég var í hreyfimyndum og það var frekar bara gaman en við áttum að gera fullt af myndum sem var reyndar dálítið erfitt. Við þurftum að tala inná og síðan ætluðum við að sýna myndbandið á uppskeruhátíðinni en við gátum það ekki því að það var ekki hægt að tengja tölvuna sem myndbandið var í við myndvarpann. Ég, Arna, Svava, Embla og Birta vorum saman í hóp. Við gerðum myndband um eiginlega blönduð ævintýri um Stigvélaða köttinn, Mjallhvít, Bangsímon, tvo Ólaprik- kalla og Kalla kanínu. Ég teiknaði og talaði inná Stígvélaða köttinn, Embla teiknaði og talaði inná Kallakanínu og hún teiknaði líka einn Ólaprik kallinn en ég talaði inná, Arna teiknaði og talaði inná Bangsímon og hinn Ólaprik kallinn og Svava teiknaði og talaði inná Mjallhvít. Við vorum líka í tónment og í fyrsta tímanum áttum við að teikna frægar stjörnur eftir tímaásnum sem er á veggnum og ég teiknaði John Lennon en ég gleimdi að láta hengja myndina á vegginn. Við gerðum líka ritgerð um frægar stjörnur og við áttum að finna myndir af þeim í tölvuni og heingja þær uppá vegg á réttan tímaás. Núna er ég nýbyrjuð í saumum og við eigum að gera náttbuxur og fengum að velja efni en við erum ekki alveg byrjaðar á þeim en við erum búin að velja efni. Það var hægt að velja blátt með blómum,bleikar með hjörtum, röndótt, og síðan nokkur köflótt. Ég valdi mér bláar og grænar köflóttar náttbuxur og ég fékk þær. Það voru líka nokkrir sem keyptu sér efni. Það er búið að vera gaman í þessu öllu.
Flokkur: Bílar og akstur | Facebook
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.